Fjársjóðseyjan (Icelandic Edition)
Robert Louis Stevenson
Fjársjóðseyjan er ein vinsælasta ævintýrasaga allra tíma og hefur heillað unga sem aldna lesendur allt frá því að hún kom fyrst út í bókarformi árið 1882. Ungur piltur finnur uppdrátt af eyðieyju þar sem merktur hefur verið inn á falinn fjársjóður. Hann er ráðinn um borð á skonnortuna Hispaniolu til að hafa uppi á ránsfengnum. Þar er skrautlegur söfnuður sjóræningja, meðal annars hinn einfætti og ógleymanlegi Langi-John Silver. Á leiðinni lenda þeir í miklum mannraunum uns þeir komast á leiðarenda og geta hafið fjársjóðsleitina. Skotinn Robert Louis Stevenson var aðeins 31 árs þegar hann skrifaði Fjársjóðseyjuna fyrir tólf ára gamlan stjúpson sinn en sagan hefur verið þýdd á fjölda tungumála og kvikmynduð rúmlega fimmtíu sinnum. Hún hefur áður komið út á íslensku undir nafninu Gulleyjan en birtist nú íslenskum lesendum óstytt í nýrri og vandaðri þýðingu Árna Óskarssonar.
년:
2016
출판사:
Mál og menning
언어:
icelandic
ISBN:
B01M9I79LM
파일:
EPUB, 2.88 MB
IPFS:
,
icelandic, 2016